Menntun til sjálfbærni

3. KAFLI Menntun til sjálfbærni – í skólastofunni 79 • Verkefni o Nota þekkingu um jarðveginn í víðu samhengi til þess að vinna markvisst að aðgerðum í skólanum, sérstaklega í gegnum Grænfánaverkefnið og þemað vistheimt o Búa til aðgerðaáætlun til að minnka eigið vistspor og fara eftir henni í daglegu lífi og reyna að hafa áhrif á fjölskylduna og nærsamfélagið. Kennarinn býr svo til einfalt kerfi sem veitir nemendum aðhald, gerir þeim kleift að meta árangur og endurskoða og endurbæta áætlunina eftir þörfum o Kynna sér ákveðið málefni sem er í samráðsferli og senda inn athugasemdir Mikilvægt er að kennarinn reyni að fylgja þessari kennslu eftir t.d. með því að rifja upp, tengja við nýtt efni, fylgjast með aðgerðum nemenda, ræða málin og vera hvetjandi á allan hátt. Best væri ef aðrir kennarar væru einnig meðvitaðir um þessa kennslu til þess að geta e.t.v. einnig tengt sitt efni við þetta þema.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=