Lúkas lesmús

Áður en þú lest söguna Lestu textann aftan á bókarkápunni sem segir frá því um hvað sagan er. Skoðaðu teikningarnar í bókinni og veltu fyrir þér söguþræðinum. Skoðaðu orðskýringar á bls. 31 og taktu eftir þegar orðin koma fyrir í sögunni. Á meðan þú lest Neðst á hverri opnu eru spurningar. Þú getur rætt þær við einhvern eða svarað þeim í huganum. Veltu fyrir þér hvað þú heldur að muni gerast næst. Staldraðu við orð sem þú skilur ekki, ræddu þau við einhvern eða athugaðu hvort þú áttir þig á merkingu þeirra út frá samhengi textans. Eftir lestur sögunnar Segðu einhverjum frá söguþræðinum og hvað þér fannst skemmtilegt, fyndið eða mest spennandi. Aftast í bókinni eru verkefni, bæði umræður og ritun. Skemmtilegast er að vinna þau í samvinnu við aðra.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=