Kyn, kynlíf og allt hitt - Rafbók

149 Það eru jafn margar gerðir af samböndum og fólki. Þú átt í sambandi við vini, kennara, við fólkið sem annast þig, fjölskyldu og eldra fólk í samfélaginu. Þú getur átt í ímynduðu sambandi við fólk sem þú hefur aldrei hitt, eins og einhvern úr bók, kvikmynd eða sjónvarpsþáttum eða jafnvel við ímyndaðan vin. Sum sambönd vara alla ævi meðan önnur eru mjög stutt. Þegar við erum ung eru flest sambönd okkar við fólkið sem við búum með, sem annast okkur. Þegar við eldumst, höfum við meira val um hverjir eru vinir okkar og hverjum við viljum verja tíma með.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=