Kyn, kynlíf og allt hitt - Rafbók

Kyn, kynlíf og allt hitt er kynfræðslubók fyrir börn á yngsta- og miðstigi, foreldra/forsjáraðila þeirra, kennara og skóla. Hún tekur til barna og fjölskyldna af öllum gerðum, kynjum og kynhneigðum þannig að öll börn og allar fjölskyldur ættu að geta speglað sig í bókinni. Bókin er á myndasöguformi þar sem fylgst er með fjórum börnum fræðast um kyn og kynlíf með virðingu, traust, ánægju og réttlæti að leiðarljósi. Bókin er mikilvægur leiðarvísir um líkama, kyn og kynverund fyrir börn. Hún veitir nauðsynlegan grunn í kynfræðslu og býður þar að auki upp á samræður milli nemenda og kennara eða foreldra/forsjáraðila. Í samtalinu er hægt að koma á framfæri skoðunum sínum og upplifunum um leið og frætt er um virðingu, mörk, öryggi og ánægju. Kennsluleiðbeiningar með bókinni má finna á vef Menntamálastofnunar. 40735

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=