Kyn, kynlíf og allt hitt - Rafbók

Hrifning, eða að vera skotin í einhverjum, er sérstök tilfinning sem þið finnið gagnvart annarri manneskju. Þið getið orðið skotin í hvernig manneskju sem er. Þið getið orðið skotin í vini eða manneskju sem þið voruð að hitta í fyrsta sinn. Þið getið jafnvel orðið skotin í manneskju sem þið hafið aldrei hitt. Við finnum ekki öll fyrir hrifningu. Ef þú finnur fyrir hrifningu getur fyrsta skiptið verið óvænt og dálítið skrýtið. Venjulega veljum við ekki að verða skotin í manneskju. Það bara gerist. 136

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=