Kveikjur

73 Fiskarnir 19. febrúar – 20. mars Fiskar eru oftast miklir dansmenn og hafa yndi af allri tónlist. Þeir eru víðsýnir og nægjusamir og láta vel að stjórn, nema þegar þeir eru beittir þrýstingi. Fiskarnir eru einkar uppteknir af þjáningum annarra, og reyndar líka sínum eigin, og margir í þessu merki finna hjá sér þörf fyrir píslarvætti. Fiskar eru rómantískir og dreymnir og hafa djúpa ást á lífinu en láta sig oft reka með straumnum og eru litlir baráttumenn, enda eiga þeir bágt með að vinna markvisst. Þeir hafa næma eðlisávísun og eru mjög hjartahlýir og hjálpsamir, enda eru þeir oft vinamargir, en stundvísi er ekki þeirra sterkasta hlið. Búðu til stjörnumerki Búðu til nýtt stjörnumerki til munnlegs flutnings fyrir bekkinn. Hvað á það að heita? Hvaða tímabil ársins tilheyrir þessu stjörnumerki? Hvað einkennir manneskjur sem eru fæddar í þessu stjörnumerki? Láttu gamminn geisa í þessu verkefni og láttu fyndnina ráða för! Taktu sérstaklega eftir því hvernig þú notar nafnorðin í þessari lýsingu. Að kryfja lýsingarorð Endurskrifaðu þessa lýsingu á stjörnumerki þannig að í stað allra lýsingarorða komi beinar lýsingar. Dæmi: Í staðinn fyrir að segja „þeir eru nægjusamir“ er hægt að segja „þeir láta sér nægja það sem nauðsynlegt er í lífinu“. Hvernig breytist textinn? 16. 17.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=