Kveikjur

Undarlegar geta auglýsingar verið … Þú getur notað ólíkar kveikjur á ýmsa vegu. Skoðaðu þessa gömlu auglýsingu og leiktu þér með hana. p Skrifaðu brandara upp úr efni hennar. p Skrifaðu ljóð. p Skrifaðu fyndið svarbréf við auglýsingunni. p Fáðu bekkjarfélaga til að leika með þér símtal á milli þess sem auglýsir og þess sem svarar auglýsingunni. 173 Tilkynning Þar eð jeg er of hlaðin störfum við bókhald, skattaframtöl, samningagerðir og a.þ.h. er algerlega þýðingarlaust að koma til mín eð hringja í síma, þessu eða öðru viðvíkjandi nema ef um kaup eða sölu á leikföngum er að ræða. V.f. Elías F. Hólm Hvað fannst mér skemmtilegast í þessum kafla? Hvaða skoðun hef ég á auglýsingum? Hvaða áhrif hafa auglýsingar á mig? Vertu vakandi og með gagnrýninn huga! Hvað er verið að reyna að selja þér? Er verið að plata þig upp úr skónum?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=