Kveikjur

Fyrstu skrefin Ef þú leyfir huganum að reika geta ólíkar kveikjur beint honum í ýmsar áttir. Skoðaðu myndina hér til hliðar og notaðu hana í ólík verkefni: p Skrifaðu stuttan texta um það hvað stelpan er að hugsa. p Hvaða framtíð bíður stúlkunnar? Hvernig verður líf hennar eftir tíu ár? Tuttugu ár? Skrifaðu stutta lýsingu á lífi hennar sem unglingi og síðan sem fullorðinnar. p Er þetta staðalmynd af stelpu? Hvers vegna? Hvers vegna ekki? (Staðalmynd er viss skoðun eða hugmynd um hópa fólks, hvernig það er eða hagar sér.) 117

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=