Hólmasól í háska

95 Heldurðu að konur hafi alls staðar í heiminum fullt frelsi yfir eigin lífi og framtíð?  Þóri er aldrei sagt að hann sé að verða nógu gamall til að ganga í hjónaband. Hann er hins vegar að verða nógu gamall til að bera vopn. Efnilegir piltar töldust færir um að bera sverð og hefna um tólf ára aldur. Finnst þér þetta skynsamlegt? Hvaða hætta getur skapast af því að unglingar beri vopn? Hvaða hætta getur skapast af því að vopn séu almennt aðgengileg?  Íslendingasögurnar gerast á fyrstu 150 árum Íslandsbyggðar og þar eru ótal vopnaðir bardagar. Á 13. öld urðu gríðarleg átök á Íslandi með mannskæðum bardögum og orrustum. Hugsaðu nú bæði um fortíðina og nútímann og reyndu að draga ályktanir af því sem þú veist. Hvernig er hægt að draga úr líkum á því að vopnuð átök eigi sér stað?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=