Halló heimur 4 - verkefnabók

7 ÁSKORUN: Lýstu tilrauninni og niðurstöðum í stuttu máli í stílabók. 18 19 Tilraun – Hárfínt stöðurafmagn Þótt við sjáum ekki stöðurafmagn með berum augum er hægt að skoða það með margs konar tilraunum. Þessi hárfína pappírstilraun er mjög skemmtileg. Gerðu eins og ég og skráðu niðurstöðuna. Stráðu litlum pappírssneplum á borðið og leggðu greiðuna upp að þeim án þess að snerta þá. Hvað gerist? Greiddu þér hratt og örugglega í eina mínútu og berðu greiðuna aftur að pappírnum. Gættu þess að snerta hann ekki. Hvað gerist? Bleyttu hárið og greiddu þér aftur í mínútu. Berðu nú greiðuna að pappírnum síðasta sinn án þess að snerta. Hvað gerist?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=