Halló heimur 4 - verkefnabók

3 Hættuleg gosefni sem berast út í andrúmsloftið við eldgos. Ský með gosefnum sem borist getur langa leið. Göng sem kvika fer um á leið sinni upp á yfirborð Jarðar. Dæld í eldstöð þar sem hraun og gas berst upp á yfirborðið. Skýstrókur með gosefnum sem getur náð margra kílómetra hæð. Ysti hluti Jarðarinnar. Sprunga í bergi sem er full af kviku. Stórt rými neðanjarðar sem geymir fljótandi kviku. Landslag yfir eldstöð þar sem eldgos eiga sér stað. Kvika frá möttli Jarðar sem hefur borist upp á yfirborðið og storknað. ÁSKORUN: Útbúðu þrívíddarlíkan af eldfjalli úr pappírsgoggi. 8 9 Eldheitar orðskýringar Á Íslandi eru yfir 30 virkar eldstöðvar og mörg eldfjöll sem gjósa reglulega. Við þurfum að kunna mörg orð í tengslum við eldgosin. Getur þú hjálpað okkur Fróðnýju að númera rétt orð við orðskýringarnar? 1 jarðskorpa 2 gosrás 3 kvikuhólf 4 gjóska 5 kvikugangur 6 eldgígur 7 hraun 8 eldfjall 9 öskustrókur 10 gjóskuský

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=