Halló heimur 4 - verkefnabók

9 ÁSKORUN: Skrifaðu 20 hluti sem þú notar daglega og ganga ekki fyrir rafmagni. Þurfum við rafmagn? Ég nota alls konar raftæki á hverjum degi og get ekki ímyndað mér lífið án rafmagns, en þú? Hér er listi yfir algeng heimilistæki og hluti sem ég fann heima hjá mér, hvað af þessu ætli þurfi rafmagn til að virka? 1 Hakaðu við þá hluti og tæki sem ganga fyrir rafmagni. fjarstýring handklæði hárbursti fjöltengi sími klósettbursti hleðslutæki sjónvarp hátalari smjörhnífur reglustika uppþvottavél skrúfblýantur eldavél heyrnartól herðatré ryksuga eldhúsborð sólgleraugu blandari brauðrist skólataska handþeytari bókamerki hárblásari skrifborðsstóll fartölva sturtuhaus ísskápur örbylgjuofn 2 Nefndu fjögur algeng heimilisraftæki til viðbótar: 3 Nefndu fjóra aðra hluti á heimilinu sem eru ekki raftæki: 4 Dragðu grænan hring um þá hluti í töflunni sem þú gætir verið án. 5 Dragðu rauðan hring um þá hluti í töflunni sem þú gætir ekki verið án. 22 23

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=