8 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu | 2026 Skipulag, efni og framkvæmd Ef ætlunin er að nýta efnið til þess að halda fræðslufund þarf að huga að nokkrum atriðum: • Velja þann sem ber ábyrgð á fræðslunni hvort sem það er stjórnandi eða kennari. • Velja þann eða þá sem bera ábyrgð á framkvæmd fræðslunnar og umsýslu ef það er annar en ábyrgðaraðili. Gott getur verið að mynda teymi sem hjálpast að. • Velja markhóp fyrir fræðsluna. • Ef ætlunin er að ná til foreldra allra barna tiltekins árgangs getur verið góð hugmynd að bjóða upp á tvo mismunandi fundartíma til að auka líkur á að allir komist. Sem dæmi einn fund að morgni og annan að kvöldi. • Móta þarf stefnu um hvort þátttaka forráðamanna í fræðslu sé valkvæð eða hvort gert er ráð fyrir að þeir mæti. Ef sú stefna er mörkuð að allir forráðamenn skulu upplýstir um fræðsluefnið þarf að huga að eftirfylgni skólans varðandi þá sem ekki koma. Fræðsluefnið samanstendur af þessari handbók, kennslumyndböndum með styðjandi aðferðum í lestrarkennslu og þjálfun, og tvö dæmi um það hvernig fræðsla af þessu tagi hefur verið útfærð af skólum. Í handbókinni eru reitir með heitinu Stuðningsefni en þar má finna krækjur á ítarefni og lestraraðferðir á neti sem hægt er að smella á til að nálgast efnið. Í framsetningu efnisins er gert ráð fyrir að haldinn sé fundur með foreldrum en með því að fá foreldra á staðinn er þeim gefið tækifæri til að spyrja, koma með athugasemdir og þannig styrkir skólinn persónuleg tengsl við foreldra. Hægt er að nýta efnið með öðrum hætti, til dæmis er hægt að taka eitt eða fleiri efnisatriði og: • Senda heim stutt skilaboð gegnum fréttabréf, vikupistla eða samfélagsmiðla skólans. • Taka fyrir einn efnisþátt eða eina aðferð (s.s. kórlestur) og senda foreldrum myndbandið og jafnvel verkefni. • Kynna valda efnisþætti á haustfundum eða öðrum fundum sem haldnir eru í skólanum. • Kynna á samfélagsmiðlum skólans.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=