7 Markmið með fræðslunni er að auka þekkingu foreldra á gildi lestrarþjálfunar, lestraraðferðum og kennsluháttum og að leggja grunn að samstarfi milli heimila og skóla um lestrarnám barnanna. Þannig eru auknar líkur á að námið gangi vel. Þess vegna er mikilvægt að í hverjum og einum skóla séu skilaboðin til foreldra ígrunduð vel. Gott er að gera grein fyrir stefnu skólans varðandi samstarfið jafnvel þó hún komi fram í læsisstefnu skólans, hvaða hlutverk eru ætluð foreldrum og rökstyðja hvers vegna. Mikilvægt er að hafa í huga að í fjölbreyttum foreldrahópi býr ýmiss konar þekking en líklegt er að flestir foreldrarnir hafi takmarkaða þekkingu á lestrarkennslu og þeim hugtökum og fagorðum sem eru notuð innan læsisfræðanna. Mikilvægt er að upplýsa foreldra um staðreyndir og kenna þeim aðferðir á eins einfaldan hátt og unnt er. Það er einkum þrennt sem hugmyndin um Markmið fræðslunnar öfluga fræðslu varðandi lestur og lestrarnám við upphaf grunnskólagöngu byggir á: • Rannsóknir hafa sýnt fram á mikilvægi heimalestrar, börn sem fá lestrarþjálfun heima með aðstoð foreldra ná betri árangri í lestri en þau sem fá litla eða enga þjálfun. • Foreldrar vilja gjarnan styðja við nám barna sinna eftir bestu getu en vantar oft þekkingu á lestri og hvernig á að þjálfa hann. • Ef kennarar ætla foreldrum stórt hlutverk í lestrarþjálfun er líklegra til árangurs að upplýsa þá um mismunandi hlutverk skóla og heimilis í lestrarnáminu og fá þeim í hendur verkfæri til þjálfunarinnar. Velji skólar að senda heim fræðslu með skilaboðum s.s. tölvupósti frekar en að boða foreldra til fundar er sérlega mikilvægt að gæta að því að framsetning sé skýr og einföld svo upplýsingarnar komist til skila.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=