33 Fræðsla Markmið: Auka meðvitund um óbein samskipti. Leiðbeinandi spyr börnin hvað þau haldi að óbein samskipti sé og skirfar upp hugmyndir krakkana upp á töflu, flettitöflu eða tölvuskjá. Að því loknu fer hann svo yfir alla þá þætti sem falla undir óbein samskipti. Svipbrigði Hægt er að koma mörgum ólíkum tilfinningum á framfæri með svipbrigðum án þess að segja eitt einasta orð. T.d. gleði, sorg, reiði, undrun, ótti eða hneykslun. Líkamstjáning Hvernig við upplifum annað fólk mótast af því hvernig það situr, gengur, standur eða með svipbrigðum. Hvernig við hreyfum okkur og hvernig við stöndum gefur þeim sem við tölum við miklar upplýsingar. Bendingar Bendingar eru ómissandi hluti af daglegu lífi og notum við hendurnar oft ómeðvitað. Notkun snertingar Snerting spilar lykilhlutverk í tjáningu og samskiptum, t.d. slappt handarband, gott faðmlag eða létt klapp á öxlina. Augnsamband Augnsamband er mjög mikilvægt. Það er hægt er að koma mörgum mismunandi skilaboðum á framfæri bara með því hvernig við horfum á manneskjuna,t.d. áhuga, ástúð og óvild. Augnsamband er mikilvægt í samtali. Þannig sjáum við hvort sá sem við erum að tala við sé að hlusta eða ekki. Persónulegt rými Ef þú stendur of nálægt einhverjum sem þú ert að tala við getur það valdið hinni manneskjunni óþægindum. Við höfum öll okkar persónulega rými og fer það eftir aðstæðum hversu mikið pláss við þurfum. Við stöndum t.d.nær þeim sem við þekkjum vel heldur en þeim sem við þekkjum ekkert. Rödd Þegar við tölum tjáum við okkur ekki aðeins með orðum. Raddbeiting, það hvort við tölum hvasst, lágt, hátt eða hlægjandi hefur mikið að segja. T.d. tónn, hljóðstyrkur, kaldhæðni, reiði eða ást. Líkamlegt útlit Litirnir á fötunum okkar, klippingin sem við veljum okkur og allt annað sem tengist útliti sendir ákveðin skilaboð í óbeinum samskiptum. T.d. gengur einhver í íþróttabol eða hljómsveitarbol og velur sér skæra liti eða dökka liti til að klæðast.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=