31 Fræðsla – Form samskipta: Ágreiningur kemur upp í öllum samböndum. Stundum getur ágreiningur þróast í rifrildi milli vina. Rifrildi hefjast oft þegar einhver upplifir að tilfinningar hans hafi verið særðar og viðkomandi svarar með því að særa hinn á móti. Að rífast við vin vekur upp tilfinningu eins og reiði. Það er eðlilegt að allir séu ekki sammála um allt en allur ágreiningur þarf ekki að leiða til rifrildis. Þegar rifrildi kemur hins vegar upp er gott að kunna nokkrar leiðir til þess að leysa það á farsælan hátt. • Að halda ró. • Útskýra þína hlið. • Hlusta á hinn aðilann. • Biðjast fyrirgefningar. • Endurtaka það sem hinn sagði. • Reyna að leysa vandamálið. Jákvæð samskipti Markmið: Að leysa aðstæður með jákvæðum samskiptum. Áhöld: Prenta út töfluna hér fyrir neðan, klippa og setja í krukku. Leiðbeiningar: 1. Leiðbeinandi býður nemanda að draga einn miða úr krukkunni. 2. Nemandi les upp af miðanum og nemendur koma með tillögu um hvernig best sé að leysa aðstæður. 3. Næsti miði er svo dreginn. Einnig er gott að ræða aðstæður sem upp hafa komið í hópnum. Systkini þitt hellir óvart einhverju á uppáhalds bolinn þinn. Bekkjarfélaginn þinn sparkar endalaust í stólinn þinn. Vinur þinn er ekki að fylgja reglunum í leik. Einhver rekst óvart á þig á ganginum í skólanum. Kennarinn þinn velur einhvern annan nemenda í sérstakt verkefni. Fullt í boði sem þig langar í. Þú og systir þín viljið leika með sama dótiðið. „Ég var með þetta“. Þú nærð ekki að læra því að bekkjarfélaginn þinn er alltaf að tala við þig. Keppni að vera fyrstur í röðinni.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=