Bókablikk - Íslendingaþættir

12 Konungur mælti: „Þetta er merkilegur maður fyrst honum fannst ekki ástæða til að segja neitt um þetta. Farðu aftur og segðu að ég vilji eignast gullskreyttu öxina.“ Þjóðólfur mælti: „Ég vil helst ekki fara aftur, herra. Ég veit ekki hvernig hann mun bregðast við.“ „Þú byrjaðir að tala um Brand, bæði nú og áður,“ segir konungur, „enda skaltu nú fara og segja að ég vilji þiggja gullskreyttu öxina. Mér finnst hann ekki örlátur nema hann gefi mér hana.“ Fer Þjóðólfur nú og hittir Brand og segir að konungur vilji eignast öxina. Brandur rétti frá sér öxina og sagði ekki orð. Þjóðólfur færir konungi öxina og segir honum hvað Brandur hafði gert. Konungur mælti: „Allt bendir til þess að þessi maður sé örlátari en aðrir menn og nú er ég að græða. Farðu einu sinni enn og segðu að ég vilji eignast kyrtilinn sem hann stendur í.“ Þjóðólfur segir: „Það er ekki kurteislegt, herra, að ég fari oftar.“ Konungur mælti: „Þú skalt víst fara.“ Þjóðólfur fer og kemur í skemmuna og segir að konungur vilji eignast kyrtilinn. Brandur hættir þá við það sem hann var að gera og fer úr kyrtlinum og segir ekki orð. Hann sprettir annarri erminni af og kastar síðan kyrtlinum frá sér en hefur eftir afskornu ermina. Þjóðólfur tekur kyrtilinn upp og fer til konungs og sýnir honum. Konungur leit á kyrtilinn og mælti: „Þessi maður er bæði örlátur merkir gjafmildur, sá sem gefur gjarnan gjafir sprettir af merkir hér tekur af, rífur af

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=