2 Margir elska að dansa, meira að segja sum dýr dansa! Býfluga dansar fyrir hinar flugurnar í búinu þegar hún hefur fundið safarík blóm og sýnir þeim þannig réttu leiðina. Loksins! Frímínútur! Hvað eigum við að gera? Ég veit, dönsum! Gulli, nei! Af hverju viltu ALLTAF dansa? Ömm, af því að ég elska að dansa? Allir vita það, en MÉR finnst það EKKI gaman! Þú ert svo mikill kjáni, Gulli. Ég ... ég er ekki kjáni. Vá, sjáðu. Hvað er þetta? Ú … Þetta er kafbátur! Vá! Það er ekki satt Gulli. Það má ekki ljúga! Ekki sanngjarnt! Ég sá hann fyrst.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=