ÆVINTÝRI Í DJÚPINU Þórey Mjallhvít H. Ómarsdóttir
Ísold er hugrökk og hjálpsöm. Hún þolir ekki lygar og óheiðarleika en er fljót að fyrirgefa. Ísold Þór finnst skemmtilegast í frímínútum og er alltaf til í að prófa eitthvað nýtt, meira að segja berjast við Glúbbíslúbbara! Steina er hugmyndarík og sjálfstæð. En hún getur verið undirförul og kemur stundum öðrum í vandræði. Steina Gulli er góður strákur en áhrifagjarn og lætur stundum draga sig út í aðstæður sem koma honum í vandræði. Gulli Þór Gulli, Ísold, Steina og Þór eru skólafélagar sem finnst gaman að fara í hlutverkaleik í frímínútum en stundum breytast leikir þeirra í alvöru ævintýri – eða hvað? Skoðaðu fyrstu blaðsíðuna í bókinni og reyndu að ímynda þér hvað muni gerast næst! Kræfir krakkar - ÆVINTÝRI Í DJÚPINU ISBN:ISBN 978-9979-0-3570-1 © 2026 Þórey Mjallhvít H. Ómarsdóttir Ritstjóri: Elín Lilja Jónasdóttir Málfarslestur: Diljá Þorbjargardóttir Öll réttindi áskilin 1. útgáfa 2026 Miðstöð menntunar og skólaþjónustu Kópavogi Hönnun og umbrot: Þórey Mjallhvít H. Ómarsdóttir Prentvinnsla:
1 Vorið er handan hornsins í Stóraskóla. Stærsti kaktus í heimi getur orðið um 12 metra hár. Það er álíka hátt og fjögurra hæða blokk! Nei, Janus! NIÐUR ÚR GLUGGAKISTUNNI og settu kaktusinn á borðið! Af hverju? Ég er ekki að fara að missa hann! Iss! Þú getur ekki misst gluggakistu OG svo er gluggakista kvenkyns! Gréta, ekki gluggakistan, heldur kaktusinn! AAAAA! ÆÆ! ÁI!
2 Margir elska að dansa, meira að segja sum dýr dansa! Býfluga dansar fyrir hinar flugurnar í búinu þegar hún hefur fundið safarík blóm og sýnir þeim þannig réttu leiðina. Loksins! Frímínútur! Hvað eigum við að gera? Ég veit, dönsum! Gulli, nei! Af hverju viltu ALLTAF dansa? Ömm, af því að ég elska að dansa? Allir vita það, en MÉR finnst það EKKI gaman! Þú ert svo mikill kjáni, Gulli. Ég ... ég er ekki kjáni. Vá, sjáðu. Hvað er þetta? Ú … Þetta er kafbátur! Vá! Það er ekki satt Gulli. Það má ekki ljúga! Ekki sanngjarnt! Ég sá hann fyrst.
3 Ég er ekkert að ljúga. Þú ert bara að ljúga. Steina, finnst þér ekki Ísold SVO leiðinleg? Ég fann bátinn fyrst! HISSS … Ósssanngjarnt. Fyrssst sssegir hún að þú sssért kjáni, sssvo sssegir hún að þú sssért lygari. Við erum sko EKKI vinir lengur. HISSS ... líttu niður. Er þetta kafbáturinn? Förum, Þór. Ég veit hvar við getum prófað kafbátinn.
4 Ísold hlýtur að hafa misst hann. Fljótur. Feldu hann! Ömm, allt í lagi. Ég skal … passa hann. Hjálp! Hann er horfinn! Kafbáturinn minn er horfinn! HISS
5 Gulli, hefurðu séð kafbátinn? HISSS Ég? Nnn … nnnei. Nei! Ekki ég … ég veit ekki … en ég skal hjálpa þér að finna hann. Hvar er hann? Tókstu hann, Gulli? Þarna! Hvar voruð þið áðan?
6 sdfs Sólsetur er þegar sólin hverfur niður fyrir sjóndeildarhringinn. Sjóndeildarhringur er ímynduð lína þar sem himinn og jörð virðast mætast. Komið þið! Við verðum að flýta okkur áður en sólin sest. Hvaða staður er þetta? Eruð þið viss? Hisss! Ó, nei … ég verð að segja henni að ég er með ... Af hverju? Hún týndi honum! Ég veit ekki … Fljótir!
7 Í dimmum dimmum helli … var dimmur dimmur skúti … Hvert erum við að fara? Þetta er bara örstutt … Eruð þið viss? Kannski er hann ekki hér … Kafbáturinn hlýtur að vera hér! og dimmt dimmt og djúpt neðanjarðarvatn.
8 Fyrstu alvöru kafarabúningarnir voru búnir til fyrir meira en 200 árum. Þeir voru mjög þungir og var lofti dælt niður til kafarans í gegnum slöngu frá skipi á yfirborðinu. Ég held að ég hafi misst hann í vatnið. VÁ! Sjáiði! Kafarabúningar! Við getum kafað! En … en … en er það ekki hættulegt? Hisss Passið ykkur bara á sprungunum … og skrímslunum …
9 Drífðu þig Gulli. Bíðið! Ég er að koma. Ég sé eitthvað! Fannstu hann? Nei, þetta er bara GULL! Algjört drasl … Æi, hvað ef hún fattar að ég … Engar áhyggjur. Ísold hefur ekki græna glóru! Hisss …
10 AAAA! Hjálp! Gulli! Hjálp! Bjargaðu mér. Dragðu mig upp! Gulli, haltu í mig. Haltu fast! Blikk
11 Glúbbíslúbbarar eru víst ekki til í alvörunni. En ef þeir VÆRU TIL væru þeir blanda af gúbbífiskum og slúbbertum … sem sagt sóðalegir gúbbífiskar! PASSAÐU ÞIG ÍSOLD. Þetta er GLÚBBÍSLÚBBARI! Hjálp, hvað er þetta? GLÚBBÍ SLÚBBÍ SLÚBB! GLÚBBÍSLÚBBARI??? GLÚBBÍ SLÚBBÍ! Búningurinn minn rifnaði!
12 Til að láta kafbáta fara í kaf er vatni dælt inn í þá. Sumir kafbátar eru með vatnstanka en aðrir eru gerðir úr tvöföldum stálskrokki og vatninu dælt í holrýmið. Þegar vatninu er dælt út verður báturinn léttari og siglir upp á yfirborðið. Sniðugt! Svona nú, af stað! Ekki ætlarðu að láta éta þig? ISSS … þau bjarga sér. Drífum okkur áður en það er um seinan! GLÚBBÍ SLÚBBÍ GULLI! Hvert ertu að fara? Komdu aftur … GLÚBB … GLÚBBÍ SLÚBBÍ Þetta er … HISSSS. Fljótur! Inn í kafbátinn. Við getum varla farið frá Ísold og Þór! AAARG!
13 KLIKK Niður, Gulli! NEI! En ættum við ekki að bíða eftir þeim? Vá! Æi, við hefðum átt að bíða. Af hverju? Þau hefðu ekki beðið eftir þér? Viltu fara upp? Ýttu á ssstóra rauða takkann … En … hvað um hina? Við getum ekki bara farið … Þá ýti ég. Arg! Fóturinn á mér! Loftið lekur út! Heyrðu, er þetta kafbátur? Hvar er Gulli?
14 Nú er nóg komið! HÆÆÆJAAA! Já, flýðu bara! Glúbbíslúbbari! GUNGA! Ísold, drífum okkur. Kafbáturinn er eina leiðin upp! Gallinn, hann er rifinn! OJ BARASTA! Vatnaköngulær! Hvað er þetta? HVAÐ ER HÚN AÐ GERA? EKKI ÉTA MIG!
15 Hvað? Hún er að laga rifuna! Þær eru ekki svo slæmar. Skuggalegir skuggavextir! HÁKARLAR!
16 Hjálp! AAA! Á meðan inni í kafbátnum. BONK Hvaða hljóð er þetta? AAA! AAA! Gulli! Af hverju fórstu? Ísold … Þór … Hæ krakkar. Hvað er að frétta? Fannstu kafbátinn minn?
17 Ha … ég? N … n … nei. Það má ekki ljúga, Gulli! En ég myndi aldrei ljúga. Heyrðu! Hvað settir þú í vasann? Og af hverju ertu með snák á öxlinni? Hvaða snák? Hér er enginn snákur! Hættu að ljúga. Við sjáum hann alveg. KONK
18 GLÚBB … GLÚBBÍ SLÚBBÍ KONK Gulli! Gríptu um stýrið áður en við kremjumst eins og kremkex! Flýttu þér! Ekki gera það, GULLI! GLÚBB!
19 HISS Gulli! Þetta ER VÍST snákur!
20 Steina!? Auðvitað! Hver annar? Ég er farin. Komdu, Þór. Gulli, kannski ekki þú.
21 Bíðið eftir mér! Steina? Þór? Ísold? Þú stalst kafbátnum mínum. Sko, ég er ekki með hann. Ég er ekki lygari … Lygari! Æi, Ísold. Bíddu eftir mér. Gulli …
22 Hérna, ég ætlaði ekki að ljúga. Fyrirgefðu … Ég var reiður vegna þess að þú kallaðir mig kjána. Og þú skildir mig út undan. Ó, já. Alveg rétt. Það var ekki gott.
23 Steppdans getur bæði verið dans og tónlist á sama tíma! Dansararnir nota fæturna eins og hljóðfæri. Undir skónum er málmplata og þannig getur dansarinn búið til takt með fótunum ... eins og dansandi trommari! Veistu hvað? Þessi drasl plast kafbátur er ekki einu sinni það flottur. Þú mátt eiga hann. Hvað eigum við að gera eftir skóla? Gulli, þú mátt ráða! Dansa! Breikdans eða steppdans?
24 Breikdans er skemmtilegur götudans þar sem dansararnir snúast á gólfinu, hoppa, halda jafnvægi á höfði eða höndum og „frjósa” í flottri stellingu. Breikdans var ný íþrótt á Ólympíuleikunum 2024 og sló í gegn! Oj, ég hef ekki tíma fyrir svona barnalæti. Ég veit, dönsum breik* eftir skóla. Já, þá verður sko enginn í fýlu! Iss, þú ert bara fýlupúki, Steina.
Eftir lesturinn! Spjallið saman og rifjið upp söguna. Um hvað fjallar sagan? Hvernig er söguþráðurinn? Hvað fannst ykkur skemmtilegast? Þið eruð í kafarabúningi og getið kafað hvert sem er. Hvað sjáið þið ofan í vatninu? Skrifið niður nokkur atriði: Eru fiskar eða eitthvað annað spennandi? Hvernig plöntur sjáið þið? Hvernig eru litirnir ofan í vatninu? Gerist eitthvað óvænt?
ÆVINTÝRI Í DJÚPINU Ísold finnur lítinn kafbát en týnir honum strax aftur. Leitin að bátnum leiðir vinina í óvænt ævintýri. Svikull snákur kemur Gulla í ógöngur en ekki er allt sem sýnist! Þórey Mjallhvít H. Ómarsdóttir 40796
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=