Á rás - Léttlestur fyrir unglingastig

74 krakka á Íslandi? Úlfur var með hugann við flugvélina. Voru allir vinir hans þar eða kannski bara Amina? Hann steig á bremsuna og sneri lyklinum. Bílinn fór ekki í gang. Hvað gerði hann vitlaust? Hann hreyfði gírstöngina og sá að hún hafði ekki verið í P. Hann færði hana þangað og sneri lyklinum og þá fór bíllinn í gang. Úlfur losaði handbremsuna og ýtti á bensíngjöfina. Bíllinn rauk af stað en drap strax á sér. Hann mátti ekki ýta of hratt á bensíngjöfina. Þegar hann hafði startað bílnum aftur leit hann út um framrúðuna. Dyrnar á skýlinu voru að lokast. Þær voru greinilega sjálfvirkar. Hann ýtti á bensíngjöfina, varlega. Hurðargatið varð sífellt minna. Hann gaf í, átti fullt í fangi með að stýra og reyndi að hitta í gatið. Hurðirnar mjökuðust í átt hvor að annarri. Hann var við það að sleppa í gegn þegar þær skullu á afturhluta bílsins.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=