Á rás - Léttlestur fyrir unglingastig

72 Hetja eða hættuspi l? Úlfur fraus þegar Amina skundaði skyndilega af stað og skokkaði í átt að vélinni. Hvernig þorði hún því? Minnstu munaði að hann hlypi á eftir henni en það væri eins og risakrumla héldi honum föstum. Vélin stoppaði rétt fyrir utan skýlið og dökkhærð kona stakk hausnum út um dyrnar. Hún brosti og gekk niður tröppurnar til móts við Aminu, eins og hún væri glöð að sjá hana. Amina gerði sér ekki grein fyrir því að ókunnugur maður læddist aftan að henni. Úlfur ætlaði að öskra en fraus. Maðurinn greip fyrir munn og nef Aminu, eins og hann væri að svæfa hana. Hún lyppaðist niður og féll á malbikið. Síðan bar fólkið hana inn í vélina en leit sífellt í kringum sig. Úlf svimaði og hann þurfti að styðja sig upp við skýlið til að detta ekki. Á sama augnabliki greip einhver í hægri handlegg hans.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=