Á ferð um samfélagið

Á ferð um samfélagið Þjóðfélagsfræði ISBN: 978-9979-0-1962-6 © 2016 Garðar Gíslason © 2016 teikningar: Heiða Rafnsdóttir Rétthafar ljósmynda og annars myndefnis eru tilgreindir í myndaskrá aftast í bókinni. Ritsjórn: Aldís Yngvadóttir og Sigrún Sóley Jökulsdóttir Faglestur: Hannes Ísberg Ólafsson félagsfræðingur, Hjálmar Bogi Hafliðason og Sigríður Valdimarsdóttir, gunnskólakennarar Málfarslestur: Ingólfur Steinsson 1. útgáfa 2016 2. útgáfa 2018 Menntamálastofnun Kópavogi Umbrot og útlit: Menntamálastofnun Prentun: Oddi ehf. – umhverfisvottuð prentsmiðja Kæri nemandi Allir námsmenn þurfa að temja sér góðar námsvenjur. Hér eru góð ráð sem gætu hjálpað þér við lestur. Lestrarráð! Áður en þú byrjar lesturinn . Skoðaðu bókina vel, myndir, kort og gröf. . Lestu efnisyfirlit og kaflaheiti. . Um hvað fjallar bókin? . Hvað veist þú um efnið? Á meðan þú lest . Finndu aðalatriðin. . Skrifaðu hjá þér minnispunkta. . Gott er að gera skýringarmyndir eða hugarkort. . Spurðu um það sem þú skilur ekki, t.d. orð og orðasambönd. Eftir lesturinn . Rifjaðu upp það sem þú last. . Veltu fyrir þér hvað eru aðalatriði og hvaða atriði skipta minna máli. . Hugsaðu um það sem þú hefur lært og tengdu við það sem þú vissir áður. . Reyndu að endursegja textann með eigin orðum.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=