Skapandi skóli

96 Spekingaspjall Nemendur fá ákveðið viðfangsefni sem þeir eiga að kenna samnemendum. Æskilegt er að nemendur séu allir búnir að fara yfir efnið og séu ekki að heyra um það í fyrsta skipti. Spekingaspjall á því vel við þegar rifja á upp námsefni eða taka það saman í lok annar. • Sérfróðir spekingar: Nemendur velja sér efni úr safni viðfangsefna sem kennarinn kynnir. Að hámarki mega þrír velja sama viðfangsefni. Þannig myndast sérfróðir hóparnir eftir áhugasviði nemenda. Þetta er hægt að gera á töflu með nemendum. • Önnur útfærsla: Kennari velur hópana og fær þeim ákveðið viðfangsefni. • Nemendur fá ákveðinn tíma til að undirbúa kynningu sína. Það fer svo eftir umfangi efnis hve langan tíma þeir þurfa. Þetta geta verið frá 10 mínútum upp í heimaverkefni fyrir næsta tíma. • Hóparnir kynna og útskýra viðfangsefni sitt á einfaldan hátt fyrir samnemendum og standa svo fyrir svörum. Sjálfsmat og jafningjamat Sjálfsmat og jafningjamat byggjast á þátttöku nemenda sjálfra í námsmati og þykja ýta undir að nemendur tileinki sér uppbyggilega sjálfsgagnrýni og taki ábyrgð á eigin námi. Þessar leiðir í námsmati eru til þess fallnar að nemendur átti sig betur á því í hverju slíkt mat felst og tengslum þess við námið sem þeir stunda. Með þessu móti verður námsmatið hluti af námi nemandans og nýtist sem tæki til þróunar og til að bæta árangur. Þegar vinnubrögð sem notuð eru við sjálfsmat og jafningjamat eru kynnt fyrir nemendum þarf að hafa í huga að líklega tekur það nokkur skipti fyrir nemendur að átta sig á því hvernig þessi matstæki eru notuð. Leggja þarf áherslu á það við nemendur að gæta þess að vera sanngjarnir í dómum sínum, meta vinnu eða framlag annarra og eigin verk en ekki einstaklinginn sjálfan. Þetta snýst ekki um að gefa vinum sínum góða umsögn eða einkunn, vinirnir þurfa að hafa unnið fyrir því. Sá sem gefur umsögn og/eða einkunn þarf að geta stutt ákvörðun sína með rökum og helst komið með leiðbeinandi og uppbyggilegar tillögur að úrbótum. Margir nemendur eiga erfitt með að meta sjálfa sig á sanngjarnan hátt og því þarf að fara rækilega yfir það líka hvaða þætti er gott að leggja til grundvallar matinu. Þetta þjálfar nemendur í því að skoða og meta verk-

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=