Skapandi skóli

90 rökhugsun barna og stýrði hliðstæðu skjaldbökunnar, tátunni sem svo var nefnd, um tölvuskjáinn. Tæknilegó fyrir ýmsan aldur kannast flestir við og er af sama meiði. Einnig er í boði ýmiss konar tæknibúnaður sem nota má til að hanna og setja saman eigin tæki eða skemmtilegt dót búið einhvers konar virkni eða viðbrögðum við áreiti, oft í bland við alls konar efnivið og föndur eftir eigin höfði. Dæmi um slíkt er Makey Makey, littleBits, Arduino og Raspberry Pi. Nánari umfjöllun um þennan búnað má finna á vef bókarinnar. Opin hönnun, endursmíðar og byggingarleikir Hugmyndir um opna hönnun og endursmíðar af öllu tagi eiga vaxandi fylgi að fagna, jafnt í skólastarfi og á öðrum vettvangi. Benda má á opnar smiðjur um nýsköpun ætlaðar skólum og öllum almenningi, Fab Lab og hugmyndir um gerendamenningu (e. maker culture), byggða á frumkvæði og samskiptum um hönnun í opnu þróunarferli, í anda sem margir tengja við opinn og frjálsan hugbúnað. Í smiðjunum má prenta út í þrívídd, skera út plast og við með leysigeisla og fást við ýmsa nýsköpun. Nú færist líka í vöxt að skólar hafi á að skipa þrívíddarprenturum og ekki er ástæða til að ætla annað en að áhugasamir kennarar nýti sér slíka tækni með nemendum sínum. Prentun á grip eða prufu getur að vísu tekið langan tíma og erfitt er að koma við prentun á stórum hlutum. Flókin þrívíddarhönnun með tæknilegum áherslum á trúlega best heima á eldri stigum en ýmislegt áhugavert má líka gera með þrívíddarteikningar og þrívíddarprentun á yngri stigum. Þá má nefna ýmiss konar tölvuleiki sem bjóða upp á tilraunir með hreyfiafl og virkni eða hönnun mannvirkja, byggingarleiki sem skólafólki og áhugafólki um manngert umhverfi er smám saman að verða ljóst að geta haft mikið menntagildi. Kunnasta dæmið um þetta er leikurinn Minecraft, sem er feykivinsæll og þykir meðal annars styðja vel við stærðfræði. Meiri fróðleik um Fab Lab er að finna á vef bókarinnar. Legóþjarki með skynjara Minecraft littleBits Með littleBits má á einfaldan hátt búa til ýmiss konar virkni í bland við alls konar efnivið

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=