Skapandi skóli

98 val hans á verkefnum sem sýna best að hann hefur náð þeim hæfniviðmiðum sem liggja til grundvallar og verk sem sýna hvernig vinna nemandans hefur þróast í átt að þeim viðmiðum sem sett voru í upphafi. Það er því mikilvægt að viðmið séu skýr og eftir því sem nemendur eru eldri brýnna að þeir fái sem gleggstar upplýsingar um þær kröfur sem gerðar eru. Verkmöppur eiga að veita yfirsýn yfir námsferil einstaklings og allur samanburður er bundinn honum. Verk nemanda eru þá fyrst og fremst borin saman við fyrri verk hans sjálfs en ekki verk annarra. Verkmappan á að sýna stöðu einstaklingsins, framfarir og námsferil með fjölbreyttum gögnum til viðbótar verkum sem nemandi hefur unnið. Dæmi um þau gögn eru matsblöð fyrir jafningjamat, sjálfsmat, umsagnir, frásagnir, matskvarðar og hæfniviðmið. Á netinu má finna ýmiss konar síður sem bjóða upp á rafræna verkmöppugerð og á fylgivef bókarinnar er bent á nokkrar þeirra. Sjálfsagt er að nýta sér slíkt í kennslu, þar sem það er hægt. Rafrænar verkmöppur kalla ekki á pappír og þær er auðvelt að endurskipuleggja og nýta ár eftir ár. Þannig má fá yfirsýn yfir þróun þekkingar og vinnubragða yfir langt tímabil.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=