Laxdæla saga

65 Rifjið upp: 1. Hver voru viðbrögð Guðrúnar þegar hún frétti að Kjartan væri kominn heim? 2. Í haustboði sem haldið var á Laugum vildi Bolli gefa Kjartani stórgjöf. Hvaða gjöf var þetta og hver voru viðbrögð Kjartans? Til umræðu: • Enn er verið að lýsa klæðnaði og öðrum búnaði Kjartans Ólafssonar. Hvaða tilgangi þjóna þessar lýsingar? • Bolli vill gefa Kjartani stórgjöf. Kjartan neitar að taka við henni. Hvað er hann í rauninni að segja þegar hann hafnar boði Bolla? • Er eitthvað í þessum kafla sem vekur hugboð um að illindi séu í aðsigi?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=