Tilbage til KINA-forsiden ... Úrvinnsla efnis
Blönduð tækni

Ef þú ætlar að beita blandaðri tækni við framsetningu efnisins getur þú:

  1. Prentað verkefnið út - lesið það - og notað það til leiðbeiningar.
  2. Afritað textann, flutt hann inn í ritvinnsluforrit og notað hann þar.
Verkefnið:
Blönduð tækni

[Kynning]
Blönduð tækni er einföld, hins vegar er vandasamt að beita henni svo vit sé í. Sett eru saman mismunandi myndir og/eða hljóð og áhorfandinn/áheyrandinn á síðan að gera sér það sem um er fjallað í hugarlund.
Þessi tækni var „uppgötvuð" í heimi kvikmyndanna, en fljótlega var farið að nota hana í útvarpi. Nú á dögum er hún einnig mikið notuð í rafrænum miðlum, m.a. á netinu og á geisladiskum.

Þegar efni er blandað á þennan hátt er markvisst höfðað til tilfinninga áhorfenda og viðhorfa þeirra. Efni, sem unnið er með þessari aðferð, er oft áleitið og tilfinningaþrungið. Sem dæmi má nefna að tvær myndir eru sýndar í einu stuttu myndskeiði. Það gætu t.d. verið mynd af líkkistu og síðan mynd af svipbrigðalausu andliti. Áhorfandinn er fljótur að álykta að maðurinn sé hryggur af því að myndin af líkkistunni kallar ósjálfrátt þá mynd fram í huga hans. Ef sýnd væri mynd af börnum að leik og sama andlit á eftir er líklegt að áhorfandinn sæi gleði í andlitssvipnum.

Annað dæmi gæti verið myndir frá flokksþingi stjórnmálaflokks og síðan mynd af visnuðum blómvendi. Flestir væru fljótir að álykta að þetta hefði ekki verið árangursríkt flokksþing.-

Samsett efni í útvarpinu skapar líka hughrif, þar er blandað saman leikrænni tjáningu, staðreyndum o.fl. Sá sem setur efnið saman (fréttamaðurinn) er á bak við, athugasemdir hans koma ekki beint fram heldur birtast í því hvernig hljóð er sett saman og hvernig það er valið (byssuskot, þytur í laufi, marrandi hurðir o.s.frv.).
Mesti styrkur efnis, sem framreitt er á þennan hátt, er þau áhrif sem það hefur á áhorfandann/hlustandann og því að höfundurinn þarf ekki að segja álit sitt heldur hrífur þann sem hlustar/horfir með sér.

[Dæmi]
Finndu dæmi um blandaða tækni í útvarpi, sjónvarpi, dagblöðum, tímaritum eða á netinu.
Skráðu hjá þér athugasemdir:
- Hvar fannstu efnið?
- Hver bjó það til?
- Hvaða áhrif hafði það á þig?
- Heldur þú að það séu þau áhrif sem höfundurinn ætlaði sér að ná fram?
- Af hverju - eða af hverju ekki?

Berðu saman margs konar samsett efni sem hefur haft mismunandi áhrif á þig, vakið andúð eða samhug, ótta, gleði o.s.frv., og athugaðu hvað það var sem hafði þessi áhrif, t.d. hljóð, skiptingar, myndir, blöndu hljóðs og mynda o.s.frv. Hugleiddu af hverju.

[Efni og uppbygging]
Með blandaðri tækni er leitast við að kalla fram tilfinningar og hugmyndir áhorfanda/áheyranda.

Höfundurinn hverfur í skuggann þannig að áhorfendur/áheyrendur verða fyrir sterkari áhrifum.


Efni sem sett er fram á þennan hátt er tilfinningaþrungið.

Aðferðir sem nota má til að lýsa persónuleika:
- Andstæður (Byssuskot - mynd af telpu að leik).
- Endurtekningar sem festast áhorfanda/áheyranda í minni.
- Notkun margs konar miðla.
- Leikur að fordómum og velþekktum myndum/hljóðum sem eru svolítið brengluð.

- Ýkjur og úrdráttur (en í því efni þarf að fara varlega).
- Hugleiddu hvaða möguleikar eru fyrir hendi og hvað er æskilegt eða óæskilegt.

Skrifaðu uppkast á blað eða inn í ritvinnsluforrit. Þá getur þú haft tvo glugga opna samtímis þegar þú ferð að skipuleggja efnismeðferð þína og afritað texta beint úr athugasemdum þínum.

[Hugmyndir og efni]

- Safnaðu efni úr þeim fjölmiðlum sem þú hefur ákveðið að nota (bútum af útvarps- og myndbandsefni, myndum úr dagblöðum og vikublöðum, efni af netinu o.s.frv.)
- Búðu til efni. Þú getur tekið upp hljóð, t.d. marr í hurð, tekið mynd af glaðlegu barni o.s.frv. Þú þarft að hugsa vandlega um hvað þú ert að gera og prófa ýmsa möguleika. Einu sinni þegar verið var að taka upp leikrit þurfti að nota sjávarhljóð. Hljóðupptökur voru gerðar á meira en eitt hundrað stöðum við sjávarsíðuna, en engin þeirra gaf rétt sjávarhljóð til kynna þegar til kom. Í örvilnun sinni reyndu hljóðmennirnir að setja hljóðnemann ofan í salerni (en bleyttu hann samt ekki) og sturtuðu niður. Þegar búið var að vinna hljóðbandið kom í ljós að á þessum bút var einmitt sjávarhljóðið sem verið var að reyna að ná fram!

- Sjáðu til þess að hafa til umráða meira efni en þú þarft að nota. Oft koma upp nýjar hugmyndir á meðan verið er að fást við efnið.
- Flokkaðu efnið og haltu þig við þau markmið sem þú hefur einsett þér að ná. Láttu tilfinningar þínar ekki ráða. Nú þarf að vera kaldur og útsjónarsamur!

- Byrjaðu að undirbúa efnið með tilliti til þess fjölmiðils sem þú ætlar að nota og hafðu allan tímann opin augu fyrir nýjum áhrifum (en haltu líka fast við markmið þitt og tímaramma verksins).

[Verkefnið þitt]
Hér koma nokkrar hugmyndir um það hvernig þú getur búið til efni með blandaðri tækni:


Það er enginn vafi á því að höfundar efnis af þessi tagi eru oft hörkutól sem markvisst reyna að ná fram ákveðnum hughrifum hjá áheyrendum/áhorfendum. Það skalt þú líka reyna að vera. Veldu þér umfjöllunarefni og taktu síðan ákvörðun um hvaða hughrif þú ætlar að kalla fram, stefndu markvisst að því að ná einmitt þeim hughrifum. Þess vegna skaltu búa til uppkast til að vinna eftir. Gefðu sérstakan gaum að öllum tengingum og samsetningum!

Næst skaltu velja þér miðil:
- hljóð (upptökutæki)
- veggspjald
- kvikmynd (myndbandsupptökuvél)
- heimasíða
- margmiðlunarsýning (Spurðu kennarann þinn hvort til sé í skólanum forrit sem hægt er að nota við slíkt, t.d. Margmiðlunarsmiðjan eða „PowerPoint“ - ef svo er ekki, er hægt að notast við gott ritvinnsluforrit.)

[Gagnrýni]
- Verkefni unnin með blandaðri tækni krefjast markvissra vinnubragða. Þar sem verið er að fást við hughrif og tilfinningar er ekki víst að þú/þið séuð sjálf bestu gagnrýnendurnir eða vitið fyrir fram hvað það er sem þið viljið ná fram. Þess vegna skulið þið hafa auga með viðbrögðum annarra á meðan fengist er við verkefnið. Ræðið viðbrögðin. Þið gætuð e.t.v. lagt fyrir spurningakönnun (en látið ekki markmið ykkar koma fram!)

- Munið að samsetning er erfið viðureignar. Höfundurinn verður að vera slunginn bragðarefur og hörkutól. Margs konar tækni getur dregið úr áhrifunum og skapað allt önnur hughrif en þau sem stefnt var að.

- Ræðið tæknina aftur.
- Hvernig má breyta því sem þú ert ekki ánægð/ur með?

Gættu þess að skrifa jafnharðan hjá þér hugmyndir og nýjar tillögur, slíkt gleymist fyrr en varir!

[Frágangur]
- Vinnuaðferðin, sem hér um ræðir, krefst nákvæmni og þess vegna er afar mikilvægt að öll smáatriði séu nákvæmlega útfærð og frágengin. Það eru einmitt oft smáatriðin sem gera gæfumuninn. Rangar samsetningar, stafsetningarvillur, fingraför á fallegri mynd o.þ.h. eyðileggja þau hughrif sem ætlunin var að ná.
- Ræðið uppsetninguna í síðasta sinn og farið yfir verkefnið.

[Birting]
Hvernig ætlar þú að kynna verkefnið:
- Fyrir afmörkuðum hópi sem þú vilt ræða við um efnið?
- Fyrir öllum bekknum?
- Skipuleggðu kynninguna út í æsar. Er nógu mikið hlustunarefni á upptökutækinu eða í tölvunni? Þurfa áhorfendur að fá slóð inn á heimasíðuna? Ef ætlunin er að ræða verkefnið eftir á skulið þið hugleiða hvernig best er að skipuleggja umræðurnar þannig að þær skili tilætluðum árangri.



Tilbage til KINA-forsiden ...