Aðalsíðan er í öðrum glugga!
Til nemenda:
Ævintýri
Ef þið ætlið að fást við ævintýri gæti verið góð
hugmynd:
- að finna og lesa fleiri ævintýri;
- að bera saman ævintýri sem þið þekkið og búrkínsk ævintýri.
Hvernig líkjast þau hvert öðru og hver er munurinn. Hvað gefa ævintýrin
til kynna um það menningarsvæði sem þau tilheyra. Þú gætir t.d. borið
saman ævintýrið um Litla Þrjót og ævintýrið um Litla Kláus
og Stóra Kláus eftir H.C.Andersen;
- að finna þér ævintýri (sjá efnislistann) og segja einhverjum öðrum
það, t.d. yngri nemendum í skólanum;
- að skrifa ævintýri sem byggist á því sem þú veist um Búrkína
Faso. Þú getur leitað eftir hugmyndum í námsbækurnar þínar eða
aðrar bækur.
Ævintýri sem fjalla um álitamál
Ef þið ætlið að fást við ævintýri sem fjalla um harða valkosti
sem persónunum eru settir gæti verið góð hugmynd:
- að finna og lesa fleiri slík ævintýri.
- að ræða saman um ævintýrin. Hvað einkennir þau? Hvað fjalla þau
um?
- að skrifa ævintýri um erfiða valkosti og byggja á því sem þið
vitið um Búrkína Fasó.
- að skrifa ævintýri sem byggja á aðstæðum sem þið þekkið.
Málshættir.
Ef þið veljið að fást við málshætti gæti verið góð
hugmynd:
- að velja nokkra málshætti og útskýra merkingu þeirra.
- að átta ykkur á því hvað málshættirnir gefa til kynna um lífið
í Búrkína Fasó.
- að skilgreina hvernig málshættirnir eiga við á Íslandi.
- að athuga hvort hér eru til málshættir sem hafa sömu merkingu.
- að skrifa samtal þar sem málshættir eru mikið notaðir, og hugsa ykkur annars vegar
að þið komið frá Búrkína Fasó, en miða hinsvegar við íslenskar
aðstæður.