Sr
38 |
Strontín finnst ekki hreint í náttúrunni en oftast sem SrCO3 eða SrSO4. Það hvarfast heiftarlega við vatn og myndast þá efnasambandið strontínhýdroxíð. Efnið er 15. algengasta frumefni jarðskorpunnar og er m.a. notað í flugelda. Einnig er strontínoxíð notað til að ná sykri úr sykurrófum. Strontín-85 er notað við leit að beinkrabba og strontín-90 er geislavirk samsæta sem sest í bein í stað kalsíns. | |
Fróðleiksmoli: Ljóseind (fótóna) er grunneining rafsegulorku. Hún er massalaus. |
Atómmassinn er 87,62 | |
Eðlismassinn er 2,63 g/cm3 | ||
Fast efni við staðalaðstæður | ||
Rafeindahýsing [ Kr ] 5s2 |
Suðumarkið er 1655 K | |
Bræðslumarkið er 1050 K | ||
Uppgötvað af Adair Crawford í Skotlandi árið 1790. | Myndar mjög basísk oxíð | |
Til baka á lotukerfið |