lotasma.gif (3564 bytes)

Ni 28
Nikkel

Efnið hefur verið lengi notað í smámynt sem blanda með kopar, en er einnig notað á ýmsa aðra vegu í málmiðnaði. Nikkel blandað stáli gefur góða tæringarvörn og er því mikið notað í vélarhluta bíla og aðra þá hluti sem mikið mæðir á. Má þar nefna öxla og gíra. Nikkelblöndur eru einnig notaðar í brynvörn stríðstækja. Efnið er notað í rafhlöður og þá aðallega blandað kadmín.
Fróðleiksmoli:
Skip rista ekki eins djúpt í sjó og í vatni vegna mismunandi eðlismassa vökvanna.
Atómmassinn er 58,6934
Eðlismassinn er 8,908 g/cm3
Fast efni við staðalaðstæður
Rafeindahýsing
[ Ar ] 3d8 4s2
Suðumarkið er 3186 K
Bræðslumarkið er 1728 K
Uppgötvað af Axel Fredrik Cronstedt í Svíþjóð árið 1751. Myndar mjög basísk oxíð
 
Til baka á lotukerfið