lotasma.gif (3564 bytes)

Li 3
Litín

Litín er léttast allra fastra frumefna. Það dregur nafn sitt af gríska orðinu liþos sem þýðir steinn. Litín myndar svart efnasamband ef það kemst í snertingu við vatn og því verður að geyma það í óvirkri olíu. Efnið hefur verið notað í málmblöndur, leirvörur, smurningu og vetnissprengjur. Einnig hefur það nýst í lyf gegn liðagigt og geðsjúkdómum. Litinhydroxíð hefur verið notað til að sía burt CO2 úr loftræstikerfi geimfara.
Fróðleiksmoli:
Leysir er efni sem leysir upp önnur efni. Algengasti leysirinn er vatn.
Atómmassinn er 6,941
Eðlismassinn er 0,535 g/cm3
Fast efni við staðalaðstæður
Rafeindahýsing
1s2 2s1
Suðumarkið er 1615 K
Bræðslumarkið er 453,69 K
Uppgötvað af Johan August Arfwedson í Svíþjóð árið 1817. Myndar mjög basísk oxíð
 
Til baka á lotukerfið