La 57 |
Lantan
er 28. algengasta efnið í jarðskorpunni og er því frekar auðfundið.
Það finnst aðallega með öðrum sjaldgæfum jarðmálmum í nokkrum steintegundum.
Óhreinsað lantan er notað í kveikjara og lantanoxíð í vissar tegundir
sjónglerja, t.d. í ljósmyndalinsur, því það eykur eiginleika glersins
til að beygja ljós. Það hefur einnig verið reynt við krabbameinslækningar. |
|
Fróðleiksmoli: Hljóðhraðinn er um 340 m á sek. í lofti en 1500 m á sek. í vatni. |
Atómmassinn er 138,9055 | |
Eðlismassinn er 6,15 g /cm3 | ||
Fast efni við staðalaðstæður | ||
Rafeindahýsing [ Xe ] 5d1 6s2 |
Suðumarkið er 3743 K | |
Bræðslumarkið er 1191 K | ||
Uppgötvað af Carl Gustaf Mosander í Svíþjóð árið 1839. | Myndar mjög basísk oxíð | |
Til baka á lotukerfið |