Lokapróf
1. Hvert eftirtalinna er ekki einn af fimm stórum hópum sem lífverum er skipt í?
A. Sveppir.
B. Dýr.
C. Þörungar.
D.
Veirur.
Lokapróf
2. Hvert er hlutverk grænukorna í frumum?
A. Að endurvinna úrgangsefni frumunnar.
B. Orkuver frumunnar.
C.
Að beisla orku sólarljóssins til búa til forðanæringu.
D. Þau eru stjórnstöð frumunnar.
Lokapróf
3. Hvers vegna getum við fengið í magann eftir að hafa borðað skemmdan mat?
A. Ef maturinn er ekki nógu heitur getur hann valdið magapínu.
B.
Bakteríur í matnum hafa fjölgað sér ótæpilega og myndað eiturefni.
C. Bakteríur verpa í matinn og egg þeirra eru eitruð.
D. Veirur hafa tekið yfir allar frumur í matnum og eitrað hann.
Lokapróf
4. Dýrasvifið er að stórum hluta:
A.
Frumdýr sem lifa í sjónum.
B. Svífandi dýr.
C. Dýr sem lifa á svifi úr sjónum.
D. Ákveðin tegund af krabbadýrum.
Lokapróf
5. Hvað nefnist ferlið sem gerist í laufblöðum plantna, þar sem orka sólarinnar er notuð til að búa til sykur?
A. Orkumyndun.
B.
Ljóstillífun.
C. Efnatillífun.
D. Ljósorkumyndun.
Lokapróf
6. Hver er helsti munur á gróum og fræjum?
A.
Fræ eru stærri og sérhæfðari en gró. Hafa forðanæringu sem hjálpar plöntunni að vaxa.
B. Gró eru stærri en fræ.
C. Fræ eiga erfiðara með að mynda plöntur en gró.
D. Gró eru sérhæfðari en fræ. Þau geta til að mynda verið með vængi og dreift sér með dýrum, lofti eða vatni sem tryggir þeim bestu mögulegu dreifingu.
Lokapróf
7. Flestir sveppir fjölga sér með:
A. Skiptingu.
B. Dvalagróum.
C.
Gróum.
D. Ekkert af þessu er rétt.
Lokapróf
8. Fléttur eru samlífi:
A.
Þörungs og svepps.
B. Frumdýrs og svepps.
C. Þörungs og mosa.
D. Bakteríu og þörungs.
Lokapróf
9. Eftirfarandi flokkar dýra tilheyra hópi hryggleysingja:
A. Fiskar, ormar, skrápdýr.
B. Svampdýr, kóngulær, skriðdýr.
C.
Skordýr, fjölfætlur, lindýr.
D. Fuglar, spendýr, fiskar.
Lokapróf
10. Þegar eggið frjóvgast inni í líkama kvendýranna er talað um:
A. Ytri frjóvgun.
B.
Innri frjóvgun.
C. Skiptingu.
D. Knappskot.
Lokapróf
11. Dýr sem halda líkamshita sínum jöfnum allt árið um kring eru:
A. Misheit dýr.
B. Hitatemprandi dýr.
C.
Jafnheit dýr.
D. Með minni orkuþörf en önnur dýr af sambærilegri stærð.
Lokapróf
12. Ef þessi lífvera missir arm getur hún endurnýjað arminn. Þessi dýr teljast til rándýra og geta melt hluta bráðarinnar utan líkamans.
A. Sniglar.
B. Samlokur.
C. Smokkfiskar.
D.
Krossfiskar.
Lokapróf
13. Hópur lífvera hefur sex fætur og tvo til fjóra vængi. Dýrin anda í gegnum andop á hliðum afturbolsins. Hér er verið að lýsa:
A. Ormum.
B. Kóngulóm.
C. Samlokum.
D.
Skordýrum.
Lokapróf
14. Þegar fuglar fljúga suður á bóginn þegar daginn tekur að stytta og æti minnkar er það dæmi um:
A. Áreiti.
B. Örvun.
C.
Eðlisávísun.
D. Samskipti.
Lokapróf
15. Fyrr á tíðum notuðu Íslendingar mó sem eldsneyti.
A. Satt.
B. Ósatt.
Lokapróf
16. Kæling og niðursuða eru aðferðir til að drepa bakteríur í mat.
A. Satt.
B. Ósatt.
Lokapróf
17. Þörungar geta ekki fjölgað sér með kynæxlun.
A. Satt.
B. Ósatt.
Lokapróf
18. Berserkjasveppur er dæmi um eitraðan svepp.
A. Satt.
B. Ósatt.
Lokapróf
19. Hvalir eru ekki spendýr.
A. Satt.
B. Ósatt.
Það var rétt !
Rétt svar er:
Spurning
af 19
Rétt svör:
Lokaprófi lokið
Þú svaraðir
spurningum af 19 rétt!