Landafræði tónlistarinnarInngangur
Tyrkland býr yfir langri menningarlegri sögu og þar eru fornar söguslóðir sem gaman er að fræðast um. Frásögnin af Trójuhestinum er t.d. mjög þekkt en Trója var borg til forna í Litlu-Asíu þar sem nú er Tyrkland. Fjallið Ararat er í Tyrklandi en í Biblíunni er talað um að örkin hans Nóa hafi strandað þar eftir flóðið mikla. Í Tyrklandi er einnig að finna borgina Gaziantep sem er ein af elstu borgum heims sem enn eru í byggð. Þá eru ekki allir sem vita að rauðklæddi jólasveinninn á uppruna sinn að rekja til Tyrklands.
Landið er Íslendingum ekki ókunnugt en í gegnum aldirnar höfum við gjarnan tengt Tyrki við Tyrkjaránið sem átti sér stað 1627. Þá var fjölda Íslendinga rænt af sjóræningjum frá Alsír sem sigldu með þá til N-Afríku og seldu sem þræla. Þessir sjóræningjar hafa oftast verið kallaðir Tyrkir, sem er þó rangnefni, en á þessum tíma höfðu Tyrkir reyndar lagt undir sig alla Norður-Afríku. Í seinni tíð hafa margir Íslendingar lagt leið sína til Tyrklands í leit að sól og sælu eða til að ferðast og skoða fornfræga staði.
Með því að kynnast tónlistarmenningu Tyrklands má læra margt um landið því tyrknesk tónlist endurspeglar það fjölskrúðuga mannlíf sem er að finna í landinu. Það sem gerir tyrknesku tónlistina heillandi er hversu margir ólíkir hópar hafa lagt sitt af mörkum til að skapa þá tónlist sem Tyrkland nútímans státar af. Í landinu búa Tyrkir, Grikkir, sígaunar, Kúrdar, arabar, Armenar, Persar og Búlgarar og allir þessir hópar og þjóðarbrot hafa haft mótandi áhrif á tyrkneska tónlist. Á þessari vefsíðu munum við kynnast Tyrklandi, sögu landsins, tyrkneskri tónlist og menningu. 