Kínamúrinn
    
Kínamúrinn er ekki einn samfelldur múr heldur margir mismunandi veggir sem byggðir voru á mismunandi tíma en það má segja að bygging múrsins hafi tekið 2000 ár með hléum. Elstu hlutarnir eru þó allir horfnir. Um 70% af múrnum eru byggðir veggir en hin 30% eru náttúrulegar varnir eins og ár, fjallshryggir, skurðir og virkisgrafir.

Allt frá 8. öld fyrir Krist höfðu ríkjandi ættir í Kína byggt varnarveggi í norðurhluta landsins til að verjast óvinum. Árið 221 f.Kr. sigraði Qin Shihuangdi, fyrsti keisari Qin-ættarinnar, þau smáríki sem fyrir voru í Kína og sameinaði alla í eitt keisaradæmi undir Qin-ættina. Shihuangdi fyrirskipaði að byggja skyldi múr á landamærunum, við þá hluta múrsins sem fyrir voru, til að vernda ríkið fyrir innrásum úr norðri sérstaklega frá mongólskum hirðingjaþjóðum. Talið er að um ein milljón bænda og stríðsfanga hafi verið látin vinna að verkinu og að þeir hafi á sjö árum reist 2000 kílómetra langan múr úr mold og steinum en engin ummerki um þennan hluta eru til í dag. Þær ættir sem komust til valda á eftir Qin-ættinni héldu áfram að reisa, gera við og endurbyggja múrinn aðallega til að verjast árásum úr norðri.

Þrátt fyrir byggingu múrsins náðu Mongólar völdum í Kína og stóð veldi þeirra frá 1279−1368. Stærsti hluti múrsins sem enn stendur í dag var byggður á 15. og 16. öld á tímum Ming-ættarinnar til að verjast innrásum Mongóla. Helsta breytingin við byggingu þessa hluta múrsins var sú að nú voru notaðir múrsteinar við byggingu hans og hefur sá hluti því varðveist mun betur. Múrinn sem stendur í dag er um 5−9 metrar á hæð og eru varðturnar á reglulegu millibili en þeir eru um 24.000. Múrinn er 5−8 metra breiður. Ytri og innri veggir úr steini eru á múrnum og á milli þeirra er göngustígur. Múrinn er um 7300 kílómetrar og er úr grjóti, tré, múrsteinum og mold. Múrinn er talinn eitt mesta mannvirki heims. Talið er að um milljón Kínverja hafi látið lífið við að reisa hann. Ming-ættin leið undir lok 1644 en þá lauk varnarhlutverki múrsins. Á 20. öld var hafist handa við að endurbyggja múrinn. Árið 1987 var hann settur á heimsminjaskrá UNESCO en flestir ferðamenn heimsækja þann hluta múrsins sem er nálægt höfuðborginni Peking. Til gamans má geta þess að hægt er að sjá Kínamúrinn úr geimfari á sporbaug um jörðu.