Pandabirnir       
Teiknimyndin Kung Fu Panda hefur notið mikilla vinsælda víða um heim en hún fjallar um risapandabjörn sem á heima í Kína en villta pandabirni er eingöngu að finna í Miðvestur- og Suðvestur-Kína.

Pandabirnirnir eru mjög sjaldgæfir og er tegundin talin í útrýmingarhættu. Risapöndur lifa í nokkrum fjallgörðum í Sichuan, Shaanxi og Gansu-héruðum í Mið-Kína. Pöndurnar lifðu eitt sinn á láglendi en landbúnaður, skógarhögg og önnur mannanna verk hafa takmarkað tilvist þeirra við fjöllin.

Villtir pandabirnir lifa nær eingöngu á bambus. Þeir éta þó einnig grastegundir, lítil nagdýr og dádýr. Í dýragörðum éta risapöndur m.a. sykurrey, hrísgrjónaseyði, sérstaka gerð af trefjakexi, gulrætur, epli og sætar kartöflur. Þó svo að pöndur teljist til bjarndýra þá leggjast þær ekki í hýði eins og aðrir tegundir bjarndýra. Afkvæmi pandabjarna dvelja með mæðrum sínum frá einu og hálfu upp í þrjú ár. Pöndur hafa mjög lága fæðingatíðni og er stofninn því stöðugt á mörkum útrýmingarhættu. Fullorðinn pandabjörn er 150 til 180 cm á hæð og vegur á bilinu 80 til 120 kg.

Vefsíður um pandabirni:
China.org.cn - upplýsingar um pandabirni (Á ensku)
Vísindavefurinn - um pandabjörn (Á íslensku)