Saga Indlands nær langt aftur í aldir. Hægt er að rekja akuryrkju aftur til ársins 6000 f.Kr. Um árið 2500 f.Kr. átti sér stað þéttbýlismenning, svokölluð Indusdalsmenning (3300-1700 f.Kr.), og átti hún upphaf sitt þar sem nú er Pakistan. Frá árunum 1500-1200 f.Kr. komu þjóðflokkar sem kölluðust Arianar og réðust inn í norðvesturhluta Indlands og breiddist þessi þjóðflokkur út um landið næstu árhundruðin.
Keisarar Maurya-keisaraveldisins, sem stóð yfir frá 321-185 f.Kr., sameinuðu það sem nú er þekkt sem Indland. Menningin til forna náði hámarki sínu á tíma Gupta-veldisins en Gupta-konungar ríktu frá 320-540 e.Kr. Bókmenntir, tónlist, leiklist, myndlist og höggmyndalist blómstruðu og á þessum tíma var hindúasiður orðinn ríkjandi á Indlandi.
Á 8. öld hófu múslimar innreið sína inn í Indland og seint á 16. öld höfðu trúarbrögð þeirra breiðst út um allt landið.
Á fyrri hluta 19. aldar var Indlandi stjórnað af breska Austur-Indíafélaginu. Árið 1857 gerðu indverskir hermenn uppreisn og börðust gegn Bretum en biðu ósigur ári seinna. Þá ákvað breska ríkisstjórnin að taka sjálf yfir stjórn landsins í stað Austur-Indíafélagsins.
Með breskum yfirráðum skapaðist friður í landinu og fjárhagsleg uppbygging en margir íbúanna töldu að Indverjar ættu að stjórna landinu sjálfir. Árið 1885 stofnaði hluti þeirra indverska Kongressflokkinn og árið 1920 hóf Mahatma Gandhi, leiðtogi flokksins, að hvetja Indverja til að neita að hlýða breskum lögum og reglum. Sú leið sem hann hvatti til er kölluð borgaraleg óhlýðni. Árið 1947 ákváðu Bretar að gefa Indverjum fullt sjálfstæði.
Minnihlutahópur múslima krafðist þess að fá sitt eigið landsvæði þar sem þeir töldu að indverski Kongressflokkurinn myndi fara illa með þá. Sem svar við því ákváðu Bretar og Kongressflokkurinn að stofna nýja þjóð, Pakistana, en landsvæði þeirra nær frá norðvestri til norðausturhluta Indlands. Þessi skipting í tvær þjóðir, Indverja og Pakistana, átti sér stað 15. ágúst 1947. Jawaharlal Nehru varð fyrsti forsætisráðherra Indlands.
Eftir að Indland hlaut sjálfstæði urðu efnahagslegar framfarir í landinu. Í dag ráða Indverjar yfir þekkingu á kjarnorku og standa framarlega í tölvuiðnaði. Árið 2004 var Manmohan Singh fyrsti síkinn til að verða forsætisráðherra Indlands.