![]()
![]()
Thomas Alva Edison fæddist í Ohio í Bandaríkjunum 11. febrúar 1847 og dó árið 1931. Edison hlaut í raun mjög litla menntun. Skólaganga hans var einungis nokkrir mánuðir því hann þótti frekar tregur nemandi. Móðir hans kenndi honum að lesa, skrifa og reikna. Edison var forvitinn og spurði spurninga. Hann las líka bækur um vísindi og tækni þannig að segja má að hann hafi komist áfram á eigin spýtur. Hann fékk áhuga á ritsíma og hóf að vinna að uppgötvunum á því sviði. Árið 1875 kom Edison upp verkstæði í New Jersey. Ein þekktasta uppgötvun hans var hljóðritinn. Af öðrum uppfinningum hans má nefna eina af fyrstu gerðum ljósaperunnar og endurbættan hljóðnema. Edison eru eignaðar um 1000 uppfinningar. Hann er talinn einn mesti uppfinningamaður allra tíma.