Leikir með blöðrur

Börnin geta leikið sér að blöðrum frjálst og einnig hlýtt fyrirmælum kennarans með ýmsum hætti.
Dæmi:

  1.  Láta blöðruna svífa í loftinu með því að slá í hana með hægri og vinstri hendi til skiptis.
  2.  Slá í blöðruna tvisvar sinnum með vinstri hendi og tvisvar með hægri.
  3.  Slá í blöðruna með höndum og olnbogum til skiptis.
  4.  Láta blöðruna svífa í loftinu með því að slá hana með hnjám.
  5.  Slá í blöðruna með hnjám og fótum til skiptis.
  6.  Slá í blöðruna með höndum og fótum til skiptis.
  7.  Liggja á bakinu og slá í blöðruna með hægri og vinstri hendi til skiptis.
  8.  Liggja á bakinu og slá í blöðruna með fótum og höndum til skiptis.
  9.  Sitja uppréttur og halda blöðrunni svífandi í loftinu.
10.  Standa á fætur og slá í blöðruna með höfði og höndum.
11.  Kasta blöðrunni fram fyrir sig og grípa.
12.  Börnin (tvö og tvö) kasta blöðru á milli sín.

Með þessum æfingum kynnast börnin líkama sínum jafnframt því sem þau þjálfa fín- og grófhreyfingar sínar.

(© 2002 Gunnhildur Óskarsdóttir og Ragnheiður Hermannsdóttir)

Loka glugga