Börnin sitja, einn stjórnar (kennarinn) og gefur fyrirmæli. Ef fyrirmælin hefjast á Komandi ..., þá eiga börnin að herma eftir, en ef fyrirmælum er sleppt þá eiga þau ekki að gera neitt, ,,frjósa”. Þau börn eru úr leik sem ekki fylgja fyrirmælum.
Dæmi um fyrirmæli:
Komandi pikkaló, börnin leika með vísifingri beggja handa á borðplötu eða á læri. (Ef stjórnandinn segir bara pikkaló, þá aðhafast börnin ekki neitt). Komandi flatt, lófar á borðið eða lærin. Komandi á fingurgóma, fingurgómar á borðplötu/lærin, o.s.frv.
(© 2005 Gunnhildur Óskarsdóttir og Ragnheiður Hermannsdóttir)