Þann 5. október 1995 fékk Ólafur Nielsen, fuglafræðingur á Náttúrufræðistofnun, sérkennilega upphringingu. Hinum megin á línunni var Magnús Þorvaldsson skipstjóri. Magnús var staddur í blindþoku á miðunum um 30 sjómílur suðaustur af Hvalnesi. Hann hafði undarlega sögu að segja. Fyrr þennan sama dag höfðu agnarsmáir fuglar komið fljúgandi utan úr þokunni og sest á skipið og önnur skip á þessum sömu miðum. Um borð hjá Magnúsi skiptu fuglarnir tugum, voru jafnvel á bilinu eitt til tvö hundruð. Fuglana þekkti Magnús ekki en vildi fá fuglafræðinginn til að segja sér hvaða tegund væri hér á ferðinni. Ólafur spurði Magnús hvort hann sæi einhvern fuglanna nógu vel til að lýsa honum fyrir sér. Magnús skipstjóri sagðist ekki vera í neinum vandræðum með það, fuglarnir væru alls staðar, það væri fullt af þeim inni í brúnni hjá honum, þeir væru allt í kringum hann og sætu bæði á stýrinu og á honum sjálfum, höfði og öxlum. Eftir nokkurt spjall kvað Ólafur upp úrskurð sinn, þetta væru glókollar. Glókollar eru pínulitlir grænleitir fuglar með fagurlitaðan, gulrauðan koll og halda sig í barrskógum Evrópu en annað slagið flækjast þeir til Íslands. Fuglarnir voru um borð í bátunum uns þokunni létti en hurfu síðan á braut.

Eftir þetta hafa glókollar haft fasta búsetu í barrskógum landsins. Það var þó ekki fyrr en sumarið 1999 að hægt var að staðfesta að þeir hefðu verpt því að þá sáust ungar í Hallormsstaðarskógi. Glókollurinn var fyrst bundinn við skóga á Austurlandi og Suðurlandi en hefur síðan breiðst hratt út og finnst nú í öllum landshlutum. Glókollar lifa í grenitrjám og nærast á skordýrum sem þeir fanga á trjánum. Þetta eru fallegir fuglar sem gaman er að horfa á, þeir bæta við tóni í fuglasöng skógarins og skógræktarmenn fagna því að allan daginn úða glókollarnir í sig skordýrum af grenitrjánum en sum þeirra dýra gera trjánum ekkert gott.

Glókollurinn er minnsti fugl á Íslandi, minni en músarrindill sem áður skipaði þennan sess. Þeir vega um 6 g.

(Munnlegar heimildir Ólafur K. Nielsen)

(© 2003 Sigrún Helgadóttir)

Loka glugga