![]()
![]()
Verkefni:
Efni
Stór krukka, möl, mold, litlar plöntur, úðabrúsi og sleif.
Framkvæmd:
Mölin sett í botn krukkunnar og síðan a.m.k. 5 cm lag af rakri mold ofan á eða nægilega mikið til að fylla fjórðung krukkunnar.
Plöntunum komið fyrir í moldinni með sleifinni eða ef op krukkunnar eru nægilega vítt geta krakkarnir plantað þeim með höndunum og þrýst moldinni þétt en varlega að þeim.
Plönturnar úðaðar vel með vatni.
Krukkunni er nú lokað vel með glæru plasti sem er strekkt yfir lokið og fest með teygju. Ekki er hægt að nota krukkulokið því þá er erfiðara að fylgjast með uppgufuninni og þéttninni.
Krukkunni er komið fyrir í góðri birtu en þó ekki þar sem sólin skín á hana.
Úrvinnsla og umræður:
Takið eftir þegar vatnið fer að þéttast á plastinu sem lokar krukkunni. Hvers vegna kemur það? Hvaðan kemur þetta vatn? Hvað gerist þegar mikið vatn hefur safnast á plastlokið? Er þetta ekki eins konar rigning?
Í krukkunni hefur í raun verið búið til lítið kerfi ekki ólíkt vistkerfum jarðar. Vatn frá jarðvegi og plöntum gufar upp í loftið eins hátt og það kemst og þéttist þar. Þegar mikið vatn hefur náð að þéttast þar myndast dropar sem falla aftur niður í moldina og á plönturnar.
Í krukkunni er jörð, loft og vatn og af því að hún er glær kemst ljósið inn í krukkuna líka. Mætti gera þessa tilraun í lokuðum potti?
(© 2001 Sigrún Helgadóttir)