Fóstbræðurnir Þorgeir og Þormóður fóru norður á Strandir og allt norður á Horn. Dag einn fóru þeir niður í bjargið að sækja hvönn. Þegar þeir höfðu skorið mikið af hvönn fór Þormóður upp á bjargið með hvönnina. Þorgeir var á eftir og allt í einu brotnaði úr skriðunni undir fótum hans. Hann greip þá í hvönn, alveg niður við rót, og hékk á henni. Fyrir neðan hann var 100 metra þverhnípi niður í grjótið í fjörunni. Þorgeir komst ekki upp. En hann vildi ekki kalla í Þormóð til að fá hann til að hjálpa sér.

Þormóður beið uppi á brúninni. Hann skildi ekki hvað Þorgeir var lengi á leiðinni upp. Loksins kallaði hann í Þorgeir og spyr hann hvort hann sé ekki búinn að tína nóg af hvönn. Ekki var að heyra að Þorgeir væri hræddur þegar hann kallaði á móti og sagði að hann yrði búinn að fá nóg af hvönn þegar sú slitnaði sem hann héldi nú í. Þormóði grunaði þá að eitthvað væri að. Hann gekk þangað sem þeir höfðu verið. Sá hann þá hvar Þorgeir hékk og kippti honum upp.

(Endursögn, Íslendingasögur, 13. kafli Fóstbræðra sögu, bls. 806–807)

Í sögunni Gerplu gerir Halldór Kiljan Laxness grín að Fóstbræðra sögu. Hann lætur í sinni sögu Þorgeir hanga lengi í hvönninni. Þormóður heldur þá áfram að tína hvannir án þess að sjá Þorgeir. Svo leggur hann sig í góða veðrinu og sofnar. Hann saknar ekki Þorgeirs fyrr en hann vaknar aftur. Þá fer hann að kalla en Þormóður svarar ekki. Loks kallar hann svo hátt að fuglarnir fælast og fljúga upp. Þá loks svarar Þorgeir og segir Þormóði að vera ekki að hræða fugla með ópum. Þormóður spyr þá hvað tefji hann. Þorgeir svarar að það skipti litlu máli. Þá spyr Þormóður hvort hann sé ekki búnn að tína nóg af hvönnum. Þormóður svarar með þessari frægu setningu: ,,Eg ætla að eg hafi þá nógar, að þessi er uppi er eg held um.“

Þegar Þormóður kíkir fram af brúninni sér hann Þorgeir hanga í lausu lofti og hvönnina alveg að slitna upp. Hann kastaði þá spotta til Þorgeirs og dró hann upp. Ekki þakkaði Þormóður Þorgeiri fyrir lífgjöfina.

(Endursögn, Gerpla, bls. 155–158 )

Loka glugga