Vatnajökull er einstakur. Hann er stærsti jökull í Evrópu, rúmlega átta þúsund ferkílómetrar, og þekur um átta hundraðshluta (8%) af Íslandi. Vesturhluti jökulsins liggur yfir virkasta gosbelti landsins. Undir norðvesturhluta Vatnajökuls er miðja möttulstróks sem nær mjög djúpt niður í jörðina.

Jökullinn er á hásléttu sem er 700–800 metra há yfir sjó. Upp úr hásléttunni rísa hæðir og fjöll. Jökullinn hylur hásléttuna, fjöll og dali. Hann er víðast 400-600 metra þykkur en um 1000 metrar þar sem hann er þykkastur. Jökullinn myndaðist fyrir um 2500 árum þegar var miklu kaldara en er nú.

Undir Vatnajökli eru nokkrar megineldstöðvar með öskjum. Þegar eldfjöllin gjósa bráðnar jökullinn. Eldgosunum fylgja mikil jökulhlaup. Þau æða yfir landið til hafs. Vatnið grefur gljúfur og skilur eftir sig sanda. Þannig mótar Vatnajökull landið alveg út að sjó.

Út frá aðaljöklinum renna skriðjöklar. Þeir eru eins og tungur niður á láglendið og heita ýmsum nöfnum. Sumir skríða um einn til tvo metra á sólarhring. Frá skriðjöklunum renna jökulár til hafs.

(© 2004 Sigrún Helgadóttir)

Loka glugga