Ljóðið Fjallið Skjaldbreiður er ellefu erindi og er einstök lýsing á eldfjalli. Það má finna í ljóðasöfnum Jónasar Hallgrímssonar og í Skólaljóðum. Í síðasta erindinu segir hann frá ferð sinni:

Heiðabúar! glöðum gesti
greiðið för um eyðifjöll.
Einn ég treð með hundi og hesti
hraun – og týnd er lestin öll.
Mjög þarf nú að mörgu að hyggja,
mikið er um dýrðir hér!
Enda skal ég úti liggja,
engin vættur grandar mér.

(© 2004 Sigrún Helgadóttir)

Loka glugga