Esjan er 914 metrar á hæð. Í henni eru mörg jarðlög, bæði hraunlög og móberg. Þau eru fjölbreytt að gerð og lit. Elsti hluti Esju er um þriggja milljón ára gamall en sá yngsti um 1,8 milljón ára gamall. Á þeim tíma sem Esjan var að myndast skiptust á hlýskeið og kuldaskeið og í kringum þann stað þar sem Esjan er nú voru stórar eldstöðvar. Þegar innri öflin höfðu lokið við að byggja upp tóku ytri öflin við. Jökull ísaldar lagðist yfir landið í meira en milljón ár. Þungur jökullinn, með skriðjöklum sínum, skóf fjöll úr jarðlagastaflanum.

(© 2004 Sigrún Helgadóttir)

Loka glugga