Leikur til að leika t.d. á ferðalögum.
Leikmenn velja sér ákveðna stafi í bílnúmeri.
Dæmi: Elí velur sér stafinn E og Auður velur sér stafinn A. Síðan fylgjast þau með bílunum sem þau mæta og telja hversu oft þeirra stafur kemur fyrir í bílnúmerunum. Sá sem hefur talið fleiri stafi þegar komið er á leiðarenda sigrar.
Afbrigði: Einnig má velja tölustafi, liti eða tegund bíls.
(Úr bókinni 10x10 leikir eftir Sóleyju Ó. Elídóttur)