Verklegar æfingar í náttúrufræði

39 Bylgjur og rafmagn Kennarasíða –Salt og pipar og Vatnsbuna Markmið Nemandi á að: • gera sér grein fyrir áhrifum andstæðra rafhleðslna. Ábendingar Tilgangurinn er að nemendur: • geri tilraunir sem sýna að hlutir geta haft tvenns konar rafhleðslu. • ræði um hvað er líkt og ólíkt með rafhlöðnum hlutum og seglum. Óhlaðið efni inniheldur jafnmargar róteindir (jákvætt hlaðnar) og rafeindir (neikvætt hlaðnar). Við núning milli tveggja hluta getur þetta breyst. Þá flytjast rafeindir úr öðrum hlutnum yfir í hinn. Sá hluturinn sem tekur við rafeindum er sagður neikvætt hlaðinn. Plastskeiðin verður neikvætt hlaðin þegar þú nuddar hana með klút og nær að skauta saltið (rekur rafeindir í það horn saltkornsins sem fjærst er skeiðinni) og dregur því til sín skautað saltkornið. Eins er með vatnsbununa, hlaðin skeiðin skautar hana og dregur hana svo til sín. Svipað gerist með segla, N skaut seguls getur skautað annars ósegulmagnað efni og dregið það til sín.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=