Verklegar æfingar í náttúrufræði

VERKLEGAR ÆFINGAR Í NÁTTÚRUFRÆÐI Í þessari bók er safn fjölbreyttra æfinga í eðlis- og efnafræði sem ætlaðar eru til ljósritunar. Æfingarnar má nýta með hvaða grunnnámsefni í náttúrufræðum sem er. Við val á verkefnunum var tekið mið af Aðalnámskrá grunnskóla – Náttúrufræði og umhverfismennt, sem gefin var út af mennta- málaráðuneytinu 2007. Verkefnin eru miðuð við nemendur á miðstigi grunnskóla en geta auðveldlega nýst fyrir önnur aldursstig. Í byrjun bókarinnar eru upplýsingar fyrir kennara þar sem m.a. er fjallað um upp- byggingu námsefnisins, skipulag námsins og námsmat. Æfingarnar taka á eftirfarandi þáttum: • Orka og orkuform • Bylgjur og rafmagn • Bygging og eiginleikar efnis og efnabreytingar • Kraftur og hreyfing Höfundar efnisins eru: Ari Ólafson eðlisfræðingur og kennari við HÍ Kristjana Skúladóttir grunnskólakennari María Sophusdóttir grunnskólakennari 06128

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=