Verður heimurinn betri?

VERÐUR HEIMURINN BETRI? Svarið ræðst af því hvern þú spyrð og hvað þú kýst að bera saman. Einhverjir myndu svara því að ástandið í heiminum hafi aldrei verið betra: fleiri og fleiri kunna að lesa og skrifa, hlutfall fátækra lækkar, fleiri hafa að- gang að hreinu vatni og ævilíkur aukast næstum því alls staðar í heiminum. Aðrir munu svara að óréttlæti hafi aldrei verið meira í heiminum, að munur á þeim fátækustu og ríkustu fari vaxandi, að þróun loftslagsmála sé enn á rangri leið og að stríð og átök skæki heiminn. Í þessari bók er stuðst við nýjar staðtölur til að lýsa þróun heimsins undanfarna áratugi. Í bókinni er heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun lýst, en þau marka leiðina að sjálfbærri framtíð bæði fyrir fólk og jörðina sem við lifum á fram til ársins 2030. Empowered lives. Resilient nations. UNDP vinnur að þróun lífskjara og starfar í 170 löndum og svæðum. Við tengjum saman lönd með þekkingu, reynslu og fjármagn til að aðstoða fólk við að bæta líf sitt. UNDP samræmir einnig starf að heimsmarkmiðunum um sjálfbæra þróun. Nánari upplýsingar má nálgast á slóðunum www.undp.se eða www.globalamålen.se.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=